Metár í íslenskum einkaleyfisumsóknum

Metár í íslenskum einkaleyfisumsóknum til Evrópsku einkaleyfastofunnar!

Í fyrra fjölgaði umsóknum um evrópsk einkaleyfi frá íslenskum aðilum til Evrópsku einkaleyfastofunnar (EPO) um 23%, á meðan heildaraukning umsókna til stofnunarinnar var 1,4%. Frá 2023 hefur þeim fjölgað um 81%.


Þetta er öflug þróun í rétta átt og merki um að sú vinna sem hefur verið lögð í að auka vitund um hugverkavernd og nýsköpun úr rannsóknum er að skila sér.


Við hjá Auðnu vinnum statt og stöðugt að því að styðja við þessa þróun með því að hjálpa til við að umbreyta rannsóknum í verðmæti, efla hugverkastefnu og styðja við alþjóðlega sókn íslenskra nýsköpunarfyrirtækja.

Á sama tíma er ljóst að tækifærið er enn mikið í samanburði við önnur Norðurlönd. Það sýnir hversu mikilvægt er að halda áfram að byggja upp sterkt vistkerfi fyrir nýsköpun og hugverk á Íslandi.


👉 Sjá nánar í nýrri samantekt Hugverkastofunnar.


DEILA

FLEIRI GREINAR

21. október 2026
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun hjá Landbúnaðarháskóla Íslands 19. nóvember
13. október 2026
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun á Akureyri 2. nóvember
Eftir Ingunn Sigurpálsdóttir • 13. október 2026
Vel heppnað MasterClass námskeið í vísindalegri nýsköpun
Fleiri greinar