MasterClass námskeið - október '26
Vel heppnað MasterClass námskeið í vísindalegri nýsköpun
MasterClass Auðnu er tveggja daga námskeið þar sem vísindafólk og rannsakendur öðlast þekkingu og hagnýt verkfæri til að kanna nýsköpunarmöguleika rannsókna sinna. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, vinnustofum og þjálfun undir leiðsögn sérfræðinga. Þátttakendur læra að greina tækifæri, þróa hugmyndir og skapa samfélagsleg og efnahagsleg verðmæti úr rannsóknarniðurstöðum sínum.
Þátttakendur á haustnámskeiðinu í síðustu viku komu víða að, en meðal þeirra voru fulltrúar frá Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Háskólanum á Bifröst og Landspítalanum, auk tveggja sprotafyrirtækja.
Dagskrá

Takk fyrir þátttökuna
Við hjá Auðnu þökkum metnaðarfullum og áhugasömum hópi fyrir virka þátttöku og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun nýsköpunar innan fræðasamfélagsins.
Einnig viljum við þakka öllum þeim sem komu fram á námskeiðinu kærlega fyrir sitt framlag en fyrirlesarar voru:
María Ellingsen, leikkona og stjórnendaþjálfari
Eiríkur Sigurðsson, Hugverkastofan
Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, Fönn Consulting
Jón Ingi Benediktsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Sverrir Geirdal, Hinos ehf
Einar Mäntylä, Orkidea
Og Ingunn Sigurpálsdóttir, Lýður Skúli Erlendsson og Anders Holm, Auðna tæknitorg
Næsta MasterClass námskeið verður haldið í byrjun árs 2027. Við hvetjum áhugasama til að hafa samband við okkur hjá Auðnu og við látum þau vita þegar opnað verður fyrir skráningu.
Hér er hægt að lesa meira um MasterClass námskeið Auðnu og sjá dagskrá fyrri námskeiða.








