Auðvarpið: Íslenskan er grunnurinn að lífinu
Íslenskan er grunnurinn að lífinu - Lilja Dögg Jónsdóttir - Almannarómur
Í dag talar Siri ekki íslensku. Við getum ekki talað við iPhone eða fengið upplestur frá honum á íslensku og stýrikerfið sjálft er ekki til á íslensku.
Getum við gert eitthvað til að breyta þessu? Getum við þrýst á Apple? Við ætlum a.m.k. að reyna!
Á Degi íslenskrar tungu keyrði Almannarómur, í samstarfi við Íslandsstofu og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, af stað átak sem er ætlað að vekja athygli Apple á mikilvægi þess að koma íslenskunni að í tækninni. Við hvetjum öll til að fara inn á tryggjumislensku.is og leggja málefninu lið.
Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, er viðmælandi Sverris Geirdal í nýjasta þætti af Auðvarpinu þar sem hún ræðir mikilvægi þess að við varðveitum íslenskuna í hröðum heimi tækninnar og það mikilvæga starf sem hefur nú þegar verið unnið á því sviði.
„Við erum fyrirmyndir á heimsvísu í því að hafa komið litlu tungumáli langt í tækni. Þegar máltækniáætlun stjórnvalda var að byrja þá var íslenskan talin vera á mörkum stafræns dauða - tungumál í útrýmingarhættu. Nú er íslenskan tungumál sem er miðlungs vel statt í tækni. Hugsið ykkur árangurinn af þessari fjárfestingu stjórnvalda!“ - Lilja Dögg Jónsdóttir
Auðvarpið er hægt að nálgast á Apple Podcasts og Spotify, en þátturinn er í boði Auðnu tæknitorgs, Kveikju, Vísindagarða Háskóla Íslands og IPHC.




