MasterClass námskeið í mars
Tveggja daga MasterClass námskeið í vísindalegri nýsköpun.

Fyrsta MasterClass námskeið ársins fór fram í byrjun vikunnar. Í þetta sinn fengum við rannsakendur til okkar frá Háskóla Íslands, Matís og Tæknisetri sem lærðu um allt ferlið frá hugmynd til hagnýtingar og förum yfir sérstöðu vísindalegrar nýsköpunar og grunnþætti verðmætasköpunar úr rannsóknarniðurstöðum.
Á þessu tveggja daga námskeiði fengu þátttakendur meðal annars fræðslu um hvernig þekkingar- og tækniyfirfærsla getur stuðlað að hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna, mikilvægi hugverkaverndar og hvernig hægt er að þróa hugmyndir með aðstoð Lean Canvas. Einnig var farið vel yfir styrkjaumhverfið á Íslandi og í Evrópu og hvað ber að hafa í huga þegar nálgast á fjárfesta. Í lok námskeiðsins fengu þátttakendur tækifæri til að kynna verkefnin sín fyrir hópnum og nýttu þau þá öll þau verkfæri sem þau fengu á námskeiðinu.
Dagskrá

Takk fyrir þátttökuna
Við hjá Auðnu þökkum metnaðarfullum og áhugasömum hópi fyrir virka þátttöku og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi þróun nýsköpunar innan fræðasamfélagsins.
Einnig viljum við þakka öllum þeim sem komu fram á námskeiðinu kærlega fyrir sitt framlag en fyrirlesarar voru:
Vilhjálmur Ásgeirsson, Árnason Faktor
María Ellingsen, leikkona og stjórnendaþjálfari
Haraldur Bergvinsson, Klak
Ximena Guardia Muguruza, VarmaMAX
Svandís Unnur Sigurðardóttir, Rannís
Jón Ingi Benediktsson, Menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytið
Og Ingunn Sigurpálsdóttir, Anders Holm og Sverrir Geirdal, Auðna TTO
Hér er hægt að lesa meira um MasterClass námskeið Auðnu og sjá dagskrá fyrri námskeiða.







