MasterClass námskeið framundan í Háskólanum í Reykjavík

Tveggja daga MasterClass námskeið sem gefur innsýn í hvernig rannsóknir og hugmyndir geta þróast í átt að hagnýtingu og samfélagslegum áhrifum.

MasterClass námskeið Auðnu - Creating Impact from Research - verður haldið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík 12.-13. maí nk.


Á námskeiðinu verður farið yfir sérstöðu vísindalegrar nýsköpunar og helstu grunnþætti verðmætasköpunar út frá rannsóknarniðurstöðum, hugverkarétt, fjármögnunarleiðir og fleira.


Námskeiðið hentar doktorsnemum, nýdoktorum, starfsfólki og öðrum sem sinna rannsóknum innan háskólans og leggur áherslu á hvernig rannsóknir geta þróast í átt að hagnýtingu og auknum samfélagslegum ávinningi.


Hér er hægt að lesa meira um MasterClass námskeið Auðnu og sjá dagskrá fyrri námskeiða.


Vinsamlegast athugið að námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en skráning er nauðsynleg. Hlekk á skráningu má finna hér en við biðjum þau sem forfallast að láta okkur vita með tölvupósti (ingunn@ttoiceland.is) svo hægt sé að ráðstafa lausum plássum. 

DEILA

FLEIRI GREINAR

21. október 2026
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun hjá Landbúnaðarháskóla Íslands 19. nóvember
13. október 2026
Örnámskeið í vísindalegri nýsköpun á Akureyri 2. nóvember
Eftir Ingunn Sigurpálsdóttir • 13. október 2026
Vel heppnað MasterClass námskeið í vísindalegri nýsköpun
Fleiri greinar