Snjallræði háskólahraðall
Frá hugmynd til áhrifa: Nýsköpun í þágu framtíðar

Ert þú með hugmynd, rannsókn eða verkefni sem gæti orðið að lausn með samfélagslegt gildi?
Snjallræði er háskólahraðall þar sem frumkvöðlateymi eða verðandi frumkvöðlar fá tækifæri til að þróa hugmyndir og vinna að lausnum, vörum eða verkefnum sem skipta máli fyrir framtíðina.
Mánudaginn 24. ágúst verður haldinn opinn kynningarfundur þar sem farið verður yfir hvað hraðallinn er, hvernig umsóknarferlið virkar og hvað þátttakendur fá út úr því - tilvalið fyrir teymi sem eru að velta fyrir sér hvort Snjallræði henti hugmyndinni þeirra.
Dagskrá:
Snjallræði kynnt — hraðallinn, samstarf háskólanna og fyrirkomulagið fyrir þátttakendur
Umræður og spurningar
24. ágúst kl. 11:30–12:00
Zoom-hlekkur:
https://us02web.zoom.us/j/89707335384
Umsóknarfrestur í Snjallræði: 27. ágúst kl. 23:59
Viðburður á Facebook: https://fb.me/e/4LJAsxOKM
Nánari upplýsingar og umsókn: https://www.snjallraedi.is/is/



